29.5.2009 | 13:18
ganga-ganga-ganga
...eins og mér komi það eitthvað við þó Haraldur Örn fresti ferð sinni á Hvannadalshnjúk þar til á sunnudag.
Ekki er ég á leið á hnjúkinn þetta árið..........
...mér kemur það heldur ekkert við, að fólk sem ég þekki er á leið til Vestmannaeyja til að ganga, spranga og skemmta sér meðal Lunda um helgina.
Ekki er ég á leiðinni þangað...........
Í raun kemur mér ekki heldur við að SérstakaTónlistagúrúið er að fara að spila á Jazzhátíð... Nördið á leið vestur... Stelpurnar mínar á leið austur fyrir fjall og fólk vítt og breitt að færa sig um set.....
Ég vil líka helst ekki vita af því að hafrún er að leika sér í sveitasælu með fjárhúsalykt angandi í fötunum og hárið flagsandi í hafgolunni......
ÉG ER AÐ VINNA ALLA HELGINA !
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.