loforð....

Eftir langan og strangan hjólreiðatúr fyrir mannesku sem þjáist af baktaki lagðist ég yfir vídeó með afkvæminu sem býr ennþá heima...  

Auðvitað varð fyrir valinu dramatísk unglingamynd  -NICK&NORAH'S infinite playlist-  þar sem kossar og kynlíf komu mikið við sögu.  Ennþá undir áhrifum myndarinnar, nýháttuð og með hugann bundinn við þrautalausn gelti hundurinn og með það sama var dyrabjöllunni hringt.  Eftir að hafa skýlt nekt minni að mestu, hentist ég til dyra og skyndilega fylltist dyragættin af karlhormónum.    Þar sem ég stóð yfir mig heilluð og lagði fram rök fyrir því hvers vegna ég neitaði að taka við lyklinum sem að mér var rétt, bauð ég fram hjálp mína í dag.

Núna sit ég og horfi á Gemsann minn og er ekki alveg viss hvort hann virkar eða hvort ég vil að hann virki.......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband