leti

Þegar kemur að þrifum heima hjá mér er ég heimsmeistari í að finna upp handbærar ástæður fyrir mig sjálfa til að fresta þeim verknaði aðeins lengur.

Í dag er ég alveg að kaupa það að ég sé búin að vinna nóg í dag.  Sama afsökun var upp á teningnum í gær og í fyrradag.  Þetta fer bara að verða spurning um hvað ég ætla að trúa þessu bulli lengi.

Annars er ég frekar einföld sál.  Ég til dæmis skipti ekki um vinnu nema ég sé tilneydd.  Ég get búið í sömu íbúðinni ár eftir ár þó að hún sé of dýr fyrir mig, of lítil og alveg við það að rotna niður.  Og ef mér finnst eitthvað gott get ég borðað það aftur dag eftir dag.

Í dag fékk ég póstkort frá Dalatangavita, ég fór á stefnumót við vinkonu mína á Kaffi Flóru og ég sat í garðinum með kellingunum í húsinu í um það bil klukkutíma að ræða um brúna maga, breytingarskeiðið og peninga...

Ég vænti þess að dagurinn á morgun verði jafn skemmtilegur ef ekki betri.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.8.2009 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband