hvert sem það leiðir mig....

.....þá kem ég til með að taka til hér heima hjá mér fram á nótt.

Á morgun mun ég hjóla niður á Skólavörðustíg og vinna mín verk þar.  Upp úr klukkan sex annað kvöld kem ég til með að rugla saman reitum við eina tveggja ára.  Það sem hún vil gera mun ég gera.  Það sem ég vil gera mun hún gera.   Þegar önnur verður svöng borða báðar og þegar önnur verður þreytt þá sofa báðar.....  Foreldrarnir ætla sér á grímubúningaskemmtun meðal vina.

Ég er búin að boða til Frænkukvölds um næstu helgi.  Reyndar er ég búin að bjóða öllum í Naglasúpu heima hjá mér föstudaginn 21.ágúst klukkan 17:00 og fram eftir kvöldi.   Það verður gaman að sjá hverjir mæta.

Pabbi talar um að fara á listasýningu.   Systir mín talar um Þingvöll, spilakvöld á bar og ömmuleik.   Sjálf held ég að ég verði að setja Esjugöngu framst á listann.

Ég á engan bíl...................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband