sjósund....

hreyfing:    hjólað að og frá nauthólsvíkinni til að henda mér út í sjó....
næring:    allt sem að kjafti kom...

Eftir langan dag nennti ég ekki að hjóla heim og hringaði mig því utan um öklann á Nördinu og horfði svo bænaraugum í átt til hans þar til hann bauðst til að keyra mig heim..

Í Nauthólsvíkinni í morgun hamaðist ég við að horfa aðdáundaraugum á allt þetta harðgerða sjósundsfólk sem skemmti sér jafn vel og ég við að labba út í 9°heita Atlantshafið ánægjunnar vegna.   Allir sem litu út fyrir að hafa eitthvað vit á því hvernig ætti að bera sig að við þessa iðju fengu óskipta athygli mína meðan ég helti yfir þá þeim spurningum sem gætu fært mér nær því að geta synt yfir Ermasundið einhvern daginn....

Vá... hvað þetta var eitthvað Töff


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband