1.10.2009 | 22:00
bara svo þið vitið það.....
..... þá er ég lasin. Og þar sem Testósterónið í mér er vel virkt síðan ég fékk stóra, ljóta, leiðinlega, sársaukafulla marblettinn á framhandlegg vinstri handar minnar, á ég ROSALEGA bágt.
Er einhver til í að koma og hjúkra mér ?
Ég er með háan hita, verk í hjartanu og höfuðverk. Það ískrar í fráblástri vinstri lungans, ég er með beinverki í herðum, mjóhrygg, lærum. rassvöðvum og fingrum. Ég er með hósta neðan úr því neðra og það mikið af honum og ég er með aukna slímmyndun í nefi, augum, munni og eyrum.
Ég er ekki samkvæmishæf. Ég hef litla orku og heilinn er ekki beint á fullum blæstri....
En ég hef svo sem séð hann verri....
Athugasemdir
nú er ég hrædd um að þú verðir að fara vel með þig - liggja bara í sófanum og glápa á rólegar myndir - eða þannig sko. og drekka vel - þú ræður hvað - alla vega vel af vatni - þúveist - þetta með vökvajafnvægið.
sendi bata kveðjur - ég vorkenni þér helling að vera veik - ekki skemmtilegt
Sigrún Óskars, 2.10.2009 kl. 22:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.