eitt augnablik....

....varð ég skelfingu lostin þar sem ég stóð inni í stofu sex og hélt fyrirlestur um kynlíf aldraða.

Hvað ef Toppmaðurinn er bara orðin þreyttur á mér...  Þreyttur á að hafa augu mín hvílandi á sér hvað sem hann hreyfir sig um í návist minni.   Þreyttur á að þurrka slef mitt af buxsnaskálmum sínum eða þreyttur á að þurfa að losa fingur mína af líkamshárum sínum sínkt og heilagt.

Getur það verið.........

Ég verð eiginlega að segja fyrir mína  parta að mér er slétt sama.   Þrátt fyrir einstaka marbletti er ég sátt.   Sátt við að finna aðeins til, gegn því að finna ylinn frá honum, lyktina af honum og að finna kitlið undan líkamshárum hans þegar hann þrýstir sér upp að mér með fast ergilegt handtak á handleggjum mínum, frussandi af reiði yfir einhverju sem er bara alls ekki mér að kenna. 

Hvað get ég gert að því þótt hann sé sætur.......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband