STRÁKAR......

....HJÁLP !!!

Núna er ég skelfingu lostin....  

Hvað á ég að gera núna þegar allir þessir strákar veita mér athygli......   Þeir bjóða mér far heim án þess að ég hangi utan í fótleggjum þeirra.   Og stoppa samt til að fullvissa sig um að mér sé alvara um að ganga heim þrátt fyrir allt.  

Voru það kannski mín fyrstu mistök að þyggja ekki far......

Svo horfa þeir á mig opnum augum án þess að ég sparki í þá eða klípi.   Svona augum sem segja:  humm þú ert svolítið áhugaverð gæti verið gaman að kynnast þér...  þið vitið svona augnaráð sem ber vitni um alvöru áhuga.

Á ég að halla aftur augunum og þykjast vera áhugalaus með öllu.....

Þið bara verðið að hjálpa mér strákar því ég er ekki að grínast með þetta  Ég er skelfingu lostin.   Hingað til hef ég bara haft ykkur og hef sko þurft að traðka á tánum ykkar, væla utan í ykkur eða sjúga mig fasta á hálsinum á ykkur til að fá athygli og bara til að fá að vera með.   Svo núna þegar þessir strákar virkilega horfa á mig, láta orð falla og koma upp að mér með væntingar veit ég bara ekkert hvernig ég á að haga mér.  

Ég meina það...  Þetta eru alvöru strákar, sætir strákar, virkilega eigulegir strákar.  Í það minnsta vel nýtanlegir strákar til allra athafna.

Á ég að byrja að mála mig og fara í eitthvað annað en gönguskóna........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe sem betur fer er ég ekki strákur, því ég veit ekki svarið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.11.2009 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband