10.5.2009 | 23:10
StarTrek-sýning
Miðað við hvað vedur.is segir þá verð ég að klæðast regnfötum á leið minni til vinnu á morgun....
Miðað við að ég fer að kenna eftir vakt á Mínum Vinnustað verð ég að hafa aukaföt með í bakpoka....
Miðað við að ég var að koma úr bíó sem ég fór í með Tenór eftir langan annasaman dag verð ég að fara að koma mér í rúm ef ég ætla að vakna hálf sjö....
Miðað við allt og allt er ég bara nokkuð góð.
Athugasemdir
Og hvar kemur svo StarTrek inn í myndina Ella mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.5.2009 kl. 10:43
ó... það er bíómyndin sem ég fór á. Ég mæli með'enni. Ótrúlega góð.
Elín Helgadóttir, 12.5.2009 kl. 23:49
Hehehehe þá veit ég það.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.5.2009 kl. 09:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.