Nördið sagði að ég væri asni.....

...Hann sagði að ég hamaðist við að blogga og setja í stöðulínuna mína á Facebook fullyrðingar um eitt og annað um hreysti mína og hreyfidugnað og svo væri ég bara að deyja úr leti inn við beinið.   Svo grenjaði hann úr hlátri þegar ég reyndi að komast út úr bílnum hans við Nauthólsvíkina gegn eigin vilja til að ganga út í Atlantshafið með Ókunnuga fólkinu.

Ég þoli ekki þennan mann......

Ég gekk nú samt út í sjóinn með Sjósundskonunni, HjúkkunniSemStalNafninuMínu og Manninum sem ég vil giftast og ég lifði það af.
Síðan fór ég að ganga með Fallega fólkinum stóran hring utan um Öskjuhlíðina.  Það er bara nokkuð fallegt þetta Fallega fólk.  Þarna var til að mynda maður sem deilir með mér hrifningu minni af Manninum sem ég vil giftast.  Hann sagðist ekki hafa þorað í mat til hans nokkuð lengi því hann væri hræddur við að missa annars mjög svo þokkalega lögun sína.  Þarna voru líka tvær fallegar ókunnugar konur sem ætla einhvern tíma að ganga með mér út í Atlantshafið.  Auk þess sem GönguglaðiStrákurinn var þarna og einn og annar sem ég kann ekki skil á.

Þaðan gekk ég svo heim.....

Núna þarf ég að hrista fram úr erminni glærur fyrir 5 kennslustunda fyrirlestur sem ég ætla að fara með á morgun eftir vinnu á Mínum Vinnustað

Og mig sem langar svo að fara að sofa......

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband