23.2.2010 | 23:03
nýjungagirni mín á sér engin takmörk
Eitt af markmiðum mínum fyrir árið 2010 var að gera eitthvað nýtt.....
Ég er búin að hátta mig úti í móa og skella mér undir lítinn foss, sápa mig, þurrka og koma mér í klæðin aftur...
Ég er búin að fara upp á svið og syngja og það tvisvar...
Ég er búin að skrá mig á Salsanámskeið...
Ég er búin að samþykkja að fara á golfæfingu...
Ég er búin að taka við rós og vikupassa í Baðhúsið úr höndum karlmanna í tilefni Konudagsins...
Ég er búin að skreppa í bað á Hveravöllum...
Ég er búin að gerast húkt á sjósundi...
Ég er búin að stíga upp á 8 cm. háa hæla og vera þar á hreyfingu í nokkra klukkutíma...
....og árið er bara rétt að byrja
Ég er búin að bíta það í mig að takast á við áskorun upp á 24 tinda á 28 tímum...
Ég er búin að skrá mig í 16 tíma göngu á Sveinstinda á Öræfajökli...
Ég er búin að ákveða að taka þátt í göngu með FallegaSalsaDansaranum, FallegaFiskverkunarManninum, Manninum sem ég vil giftast og mörgum, mörgum göngum með GönguglaðaKúrubangsanum...
Ég hlakka svo til allra þeirra augnablika sem ég get ekki einu sinni gert mér í hugalund um að ég eigi eftir að upplifa... kannski köfun, kannski hellaferðar, kannski fallhlífastökk, kannski klettaklifur, kannski skíðaferð í Ölpunum, Spænskunámskeið á Spáni, vinna í Færeyjum......
Ég er staðákveðin í því að megninu af þessu sumri verður sko eytt í leti....
Athugasemdir
Sigrún Óskars, 26.2.2010 kl. 14:15
jamm Sigrún.... lífið er ljúft !!
Elín Helgadóttir, 27.2.2010 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.